Arctic Heli Skiing er ný og ótrúlega spennandi viðbót við þá fjölbreyttu flóru ferða sem Bergmenn fjallaleiðsögumenn
bjóða uppá. Síðastliðin 11 ár hafa Bergmenn sérhæft sig í fjallaskíðaferðum á Tröllaskaga og nú í
dag er svo komið að Tröllaskaginn er orðin heimsþekktur viðkomustaður fjallaskíðafólks víðsvegar að úr heiminum. Bergmenn
bjóða nú uppá skipulagðar þyrluskíðaferðir á Tröllaskaganum þar sem tækifærin til skíðunnar eru
ótæmandi með þúsundum brekkna með fallhæð allt að 1500m sem er eins gott og það gerist á heimsvísu.
Skíðasvæðið sem opnast með aðstoð þyrlunnar er gríðarlega umfangsmikið eða tæpir 4000 ferkílómetrar beggja vegna Eyjafjarðar þar sem allar tegundir skíðabrekkna er að finna, allt frá bröttustu giljum til víðáttumikilla hvilftarjökla, sem þíðir að allt skíðafólk finnur eitthvað við sitt hæfi. Það að skíða af hæstu tindum Tröllaskagans alveg niður í svartar sandfjörur í miðnætursól er einstök upplifun sem enginn má missa af að prófa þótt ekki sé nema einu sinni á lífsleiðinni. Skoðaðu frábærar myndir og video eða lestu greinar um þetta stórkostlega ævintýri hér.

Við byrjum að skíða á Tröllaskaganum um miðjan mars og vertíðin endist fram í júní í venjulegu ári með
almennt frábæru vorskíðafæri og einstaka góðum púður degi. Vegna þess að Tröllaskaginn er strandfjallgarður eru
snjóalög þar þykk og að sama skapi stöðug hvað varðar snjóflóðahættu þegar líða tekur á vorið.
Þetta þíðir að við getum skíðað brattari brekkur en gengur og gerist í þyrluskíðamennsku annarsstaðar í heiminum.
Veðurfar á Tröllaskaga í apríl og maí er tiltölulega stöðugt á Íslenskan mælikvarða með löngum stillum og
sólríkum dögum. Þótt að það geti gert slæm veður að þá vara þau yfirleitt ekki lengi og með löngum dögum
vorsins er hægt að skíða nánast 24 tíma á sólarhring.